
![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
Hér að neðan fylgir frábær texti sem "kamilla" (heiti hans í Hattrick) hefur sett saman fyrir byrjendur. Frábær texti sem allir nýgræðingar ættu að lesa. Nýr og endurbættur texti er í vinnslu hjá kamilla.
Einnig geturðu séð textann á pdf formi með því að smella hér þar er textinn einnig stærri og e.t.v. hentugri til að prenta út (ef skjalið opnast ekki, þá er hægt að ná í Adobe Reader hér) Prologus Ef að þú fílar fótbolta og smá hugsun, þá er þetta eitthvað fyrir þig. Hattrick er manager leikur sem gengur út á það að byggja upp lið, vinna leiki, þjálfa leikmenn, og sjá að töluverðum hluta um fjárhagslegu hliðina. Og svo náttúrulega félagsskapurinn, þegar þetta er skrifað eru 360 íslenskir notendur og yfir 400.000 frá a.m.k. 80 löndum allstaðar að úr heiminum, þannig að þó að þú sért kannski ekki bolta fíkilinn, þá er þetta samt leikur fyrir þig, því það er svo margt annað í þessum leik. Intro Þegar þú byrjar nýr / ný (já það er slatti af stelpum í þessum leik, meirað segja í íslensku deildinni líka) í þessum leik færð þú lið sem þú skýrir, t.d. UMF Dögun, Ólafur Pái eða Æskan, eða eitthvað sem hugurinn girnist. 3 dögum seinna (sirka) færð þú liðið afhent, 18 leikmenn, 7000 manna völl og þjálfara (sem reyndar er ekkert til að hrópa húrra fyrir, en meira um það seinna), einnig færð þú 500 manna stuðnigsmanna klúbb og að sjálfsögðu 30.000.000 ISK. Athugið að þetta sem stendur hérna, er ekki heilagur sannleikur, bara það sem mér datt í hug að skrifa til að hjálpa ykkur, auðvitað getur verið að þið séuð ósammála og finnið eitthvað betra, það er alltaf svoleiðis. En ég bið ykkur, lesið þetta og reglurnar og síðurnar sem ég linka á neðst, áður en þið gerið eitthvað dramatískt eins og að eyða öllum peningnum í leikmann með formidable stamina, af því að það er svo magnað. EKKI GERA NEITT, nema að íhuga það vel, þetta er ekki leikur sem vinnst á einum degi, frekar ári eða meira jafnvel, þetta er nú einu sinni yfir 6 ára gamall leikur... Leikmenn Leikmenn í þessum leik eru aðeins öðruvísi en í CM, í CM eru þeir með milljón stats og margt er hidden og allt í veseni og allt er merkt með tölum, þannig er það ekki í hattrick. Þeir eru með 8 venjulega stats, svo er það form, reynsla, hvernig þeir eru félagslega og á vellinum (heiðarlegir eða þannig). Flestir leikmenn Hattrick, heita bull nöfnum miðað við ensku deildina, en þó eru nokkrir sem eru með sömu nöfn en þeir geta kannski ekkert, enda eru nöfn alveg random og á Íslandi erum við með okkar eigin nafnadatabase, þ.e. við fáum leikmenn með Íslenskum nöfnum ekki útlenskum, þó að það komi fyrir, ég meina, Duranona var ekki íslenskur en samt með íslenskan ríkisborgararétt... Það sama gildir um Hattrick, stundum fáum við nýbúa og það er bara fínt. Hinn týpíski leikmaður lítur svona út. Stefán Þórðarsson (1234567) 30 years, solid form, healthy A nasty fellow who is fiery and infamous. Has disastrous experience and poor leadership abilities. Speciality: Head Nationality: Ísland Total Skill Index (TSI): 4 680 Wage: 180 000 Ikr/week Owner: ÍA Warnings: 0 Stamina: excellent Goaltending: disastrous Playmaking: weak Passing: wretched Winger: passable Defending: poor Scoring: passable Set Pieces: wretched Career Goals: 120 Career Hattricks: 0 League goals this season: 0 Cup goals this season: 0 Þessi leikmaður er sem sagt, nasty, það hefur áhrif á teamspirit og svona, fiery, gæti verið með læti á velli, infamous, sama hér, ekki góður við dómarann. Hefur svo að segja enga reynslu, lélegur leader og getur þó skallað (specialty head). Leikmenn eru með mismunandi þarna og þetta eru hlutir sem ekki er hægt að breyta með þjálfun, því að allt nema reynsla er fasti, ef svo má að orði komast, reynsla að sjálfsögðu kemur bara þegar hann spilar. Það sem er hægt að þjálfa, er allt hitt, þ.e. form, í raun ekki hægt að þjálfa það, bara vona það besta, allt hitt er þjálfanlegt og verður það meira í næsta kafla. En hinsvegar hitt, þ.e. að leikmenn eru með orð í stað talna, gæti gert leikinn flókinn við fyrstu sýn, en þegar betur er að gá, þá þýðir excellent 8, weak 4, passable 6 og solid 7. Sjá þennan lista divine utopian magical mythical extra-terrestrial titanic supernatural world class magnificent brilliant outstanding formidable excellent solid passable inadequate weak poor wretched disastrous Þetta er frá hæsta til lægsta. Snúum okkur að training. Training Það er margt sem þarf að huga að við byrjun þessa leiks, í fyrsta lagi, þá er það þjálfun, hvað á að þjálfa og hvernig er best að láta það ganga sem best, fyrst af öllu væri gott að finna í hverju YNGSTU leikmennirnir eru bestir í (leikmenn geta verið frá 17 og uppúr) því næst er að velja training, ég held að flestir í þessum geti verið sammála um það að til að komast áfram þá er gott að vera með gott training program. Þær training sem hægt er að velja eru: General: gerir ekkert til langstíma litið en hækkar form lítlega þegar það er gert, almennt talið það VERSTA... Stamina: Það eru ekki margir leikmenn á vellinum sem þurfa hærri en passable stamina, það eru þá bara miðjumenn og menn sem nota skal í pressing tactik. Gott að gera þetta í kannski 2-3 vikur til að byrja með, enda flestir nýju leikmannana með lélega staminu. Allir í liðinu trainast. Set pieces: Aukaspyrnur og vítaspyrnur eru hluti af leiknum og það er gott að hafa nokkra menn sem eru góðir í þessu, en til að traina þetta vel, þarf mikla reynslu og þekkingu á leiknum, geymið þetta þangað til seinna, allir í liðinu trainast. Defending: Það er vörnin, lengi að trainast, en á móti kemur að það er hægt að traina 10 menn í viku. Ekki alveg það mikilvægasta í hattrick, því miður, en það er þó hægt að vera með gott lið af að leikmennirnir eru réttir, þá er hægt að nota þá í counterattack taktíkina sem ég kem inná í næsta kafla. Scoring: Segir sig sjálft, hjálpar leikmönnum að setjann, 6 geta verið þjálfaðir í þessari stöðu í viku hverri, þú vinnur ekki leik nema að þú skorir, eða er það nokkuð? Cross pass (winger): Þetta þjálfar winger hjá leikmönnum, hentar kantmönnum vel og bakvörðum, hægt að þjálfa 4 með fullum hraða og 4 með 50% hraða. Shooting: Þjálfar scoring og set pieces saman í einu, ekkert voðalega sterkur leikur, en allir fá smá, nema markvörðurinn. Short passes: Þjálfar passing, sem er nú alltaf að verða meira og meira mikilvægt í þessum leik. Aðeins leikmenn sem spila fyrir framan vörnina fá training, þ.e. kantur, miðja og sókn. Playmaking: Þjálfar playmaking hjá miðjumönnum, mikilvægt að vera með gott playmaking, því að það ræður því hversu mikið posession þú ert með, og þú skorar víst lítið ef að þú ert ekkert með boltann. Þjálfar 6 að fullu og 4 50% á viku. Var almennt talið besta training, en er núna að missa mikilvægi sitt. En er þó mikilvægt engu að síður. Goaltending: Markverðir hagnast af þessu, og því aðeins hægt að þjálfa 2 á viku. Fljótt að hækka og markverðir verða stjörnur á nó time. Með training, þá er best að hafa sem yngsta leikmenn, og til að þeira fái training í einhverjum af main skills, þ.e. playmaking, defending, goaltending, cross pass eða scoring, þá þurfa þeir að hafa spilað í tilheyrandi stöðu í SÍÐASTA leik sem þeir spiluðu FYRIR training update, sem sagt, ef Jón Jónsson á að fá miðju (playmaking þjálfun) þá þýðir ekki að spila honum sem miðju manni í sunnudagsleik (sjá nánar um leiki næst) og svo sem varnarmanni í miðvikudagsleik. OG MUNIÐ því hærra training intenisty, því betri þjálfun, þ.e. fyrir hvert % frá hundrað minnkar þjálfunin sem hann fær um 1% af því sem hann hefði getað fengið. En hærri training prósenta hækkar líkur á meiðslum, en phyisios koma í veg fyrir það (sjá meira um physios og félaga seinna). Og munið aldrei meira en 3 leikmenn í hverri stöðu, þ.e. 3 central defenders, 3 inner midfield, 3 forward, annars tapast training útaf misskilning... sem sagt ekki spila Houllier bolta, ekki spila samba bolta og ekki spila norskan bolta og alls ekki ítalskan bolta þegar þú ert búinn að skora ;P Leikur Í hattrick eru 5 tegundir af leikjum, deild, bikar, vináttu (international og venjulegur), qualification leikur og landsleikur. Þessum síðasta þarftu lítið að skipta þér af nema að þú hafir áhuga á landsliði Íslands (já við erum með landslið og öll hin löndin líka, meira um það seinna). Deildarleikir eru spilaðir á sunnudagskvöldum kl.22.45 að HT-tíma, sem er þá ýmist 1-2 tímum á undan íslenska tímanum, fer eftir því hvort að það sé vetur eða sumar. Fyrir hvern leik, þarftu að stilla upp liði, velja leikmenn og varamenn, þetta er erfiðasti hlutinn, en það eru til nokkur góð forrit til að HJÁLPA þér að velja, þau eru ekki alvitur, en þau gefa þér nokkuð góða mynd af þessu, fyrsta forritið sem ég bendi á er Tomattrick http://www.tomattrick.org/ , en það er internetbased hjálparforrit, mjög gott en ekki alviturt, en það er safe, og það er líka alveg safe að nota það, þó svo að þeir biðji þig um password og vesen í hattrick, það er í lagi, en ekki samt gefa það neinum sem biður þig um það í email eða ht-mail eða þess háttar. Næsta forrit er HTR (http://www.htratings.com/index_en.html) raiting forrit og með því fylgir forrit sem er gott til að gera uppstillingar ef þú ert alveg nýr / ný. Bikarleikir eru spilaðir á miðvikudögum kl.20.45 sama tíma og vináttu leikir á Íslandi, ATH, það er ekki sami tími á leikjum allstaðar í heiminum, þ.e. svíar spila ekki á sama tíma og við og svo framvegis. Til að fá vináttu leik, þarf að skora á fólk (challange) annað hvort home eða away og velja reglur, cup reglur (þá er framlengt og vító ef það er jafnt, eykur líka líkur á meiðslum) eða normal (rétt eins og deildarleikir). Þú getur ekki tekið þátt í bikar nema að þú sért einn / ein af 512 efstu á Íslandi (þá er tekið mið af stöðu síðasta tímabil), bikarinn byrjar í byrjun hvers tímabils (sjá nánar um tímabil og deildar skipan á eftir). Qualification leikir eru spilaðir í enda hvers tímabils, og til að fá svoleiðis leik, þá ertu annaðhvort að verja sæti þitt í deildinni eða að komast upp um deild. Landsleikir eru önnur saga, sjá nánar um landslið, jább you guessed it, á eftir. Coach, assistants og meira Það eru 7 mismunandi assistants Goaltending Coaches: Hjálpa þér að halda markvörðum í formi (þ.e. ef þú þjálfar ekki mark) og smátt og smátt (þá meina ég MJÖG smátt) gera markvörðinn betri, aftur, þ.e.a.s. ef þú þjálfar ekki MARK Assistant Coaches: Hjálpa þér að halda outfield leikmönnum í formi og bæta þá smátt og smátt í því sem þú þjálfar. Sport Psychologists: Sálfræðingar, ef þú tapar 10-0 þá er gott að hafa nokkra svona, en ekki ef þú vinnur 10-0 þá getur þú fengið over confidence, lesið nánar um það í reglum. Spokepersons: Blaðafulltrúar ef svo má að orði komast, hjálpa liðinu þínu að vera meira popular með aðdáenda. Economists: Hjálpa þér að fá pening ef þú átt mikið af honum þá getur þú fengið vexti, nú eða þá til að lækka vexti ef þú ert í mínus. Physiotherapists: Physios, koma í veg fyrir meiðsli Doctors: Læknar, lækna meiðsli Athugið að mesta sem er hægt að hafa án þess að fokka einhverju upp er 10 af hverju, nema af assistant og goaltending coaches, þá er það 10 samtals, (best er að hafa 8 assistant og 2 goaltending, eða 9 assistant og 1 goaltending ef þú þjálar útileikmenn, annars 5-5 ef þú ert að þjálfa mark). Hver assistant kostar þig 150.000 kr á viku, það kostar líka 150.000 að reka einn. Hugsið áður en þið ráðið. Þjálfari, þið byrjið með WEAK coach, sem er 4 lélegasti sem er hægt að fá, best er að upgrada strax í a.m.k. passable, helst solid, það kostar tæpar 8 millur að fá passable, og 27 að fá solid, þeir eru þá með poor leadership, eina sem leadership gerir á þjálfurum er að halda team spirit uppi, sem er reyndar mjög mikilvægt, en það er þá helst í efri deildum, ekki þar sem að þið byrjið, þar er mikilvægast að fá sem mest training, því að þá batnar liðið fljótar. Ég mæli með Passable/Poor fyrstu tvö tímabilin eða svo. Ein vika Á einni viku í Hattrick gerist margt, mikilvægast eru þó leikir, miðvikudaga og sunnudaga, training á föstudögum og economy update á laugardögum, þetta er nóg til að byrja með, svo lærist hitt. Tímabil Eitt tímabil í Hattrick er 16 vikur, Fyrsta vikan byrjar með bikarleik á miðvikudegi, svo kemur helgin, þá er training og economy update, og svo byrjar deildin, 14 leikir í deild og nokkrir í bikar og svo vináttuleikir líka, það er týpískt tímabil. Á síðasta sunnudegi tímabilsins, þá er úrslita leikur á HM annaðhvort A-landsliða eða u20, það er skemmst að segja frá því að Ísland er frekar langt frá því að komast þangað, en þess vegna vantar okkur ykkur til að vera með, því að ef þið eruð með, það þýðir fleiri íslenskir leikmenn og meiri líkur á góður gengi. Eftirmáli (og hvernig skal byrja) Þú byrjar á því að búa til nýtt lið. Það er gert með því að fara á http://www.hattrick.org, velja join þarna vinstra megin á menu, beint neðan við menu. Annaðhvort finna þeir út hvaðan þú ert með IP-tölu, en ef ekki þá þarftu að velja landið í drop-down menu-num sem birtist. Ísland er á milli Ireland og Israel og heitir einfaldlega ÍSLAND. Því næst þarftu að bíða eftir að liðið þitt verði samþykkt, gæti tekið 2-3 daga, þannig að það er ekkert mál. En á þeim tíma getur þú gert margt, t.d. loggað þig inn og breytt password úr þessu sem HT gefur þér yfir í það sem þú villt. Ekki sama og user nafnið, og alls ekki nota HOTMAIL account til að skrá þig, frekar bara vísir.is eða eitthvað. Nú svo getur þú skoðað spjallið (conference), þar getur þú gerst áskrifandi af nokkrum mismunandi spjallborðum, s.s. íslenska, global, deildinni þinni og fleira og fleira. Alltaf hægt að finna eitthvað nýtt að skoða. Svo eru það náttúrulega reglurnar sem þarf að lesa frá a-ö og alls ekki sjáldnar en einu sinni. Mikilvægt að kunna þær vel. Gott er líka að fara á newbie-conference, ef þú ert sæmilega að þér í ensku, annars er það bara gamla góða íslenska spjallið. Einnig ef það er eitthvað sem vefst fyrir þér getur þú contactað userinn kamilla á hattrick, þ.e. með því að logga þig inn, klikka á ísland, velja search, user name: kamilla og klikka þar og senda HT-mail. Góðar síður sem vert er að skoða: http://www.hottrick.org/Sections+index-req-viewarticle-artid-1-page-1.html http://www.databased.at/hattrick - klikka á X-files http://hem.passagen.se/hammervald/abc_of_tactics_index.htm ![]() bjarkih@bjarkih.com |